Jæja, nú erum við hjónin byrjuð á miklum framkvæmdum, nú ætlum við nefnilega að byggja okkur hús. Ég er búinn að teikna það en húsið
verður sett saman af tveimur einingum sem standa hlið við hlið. Önnur einingin inniheldur stóra stofu og lítið vinnuherbergi en hin eldhús, borðstofu, baðherbergi og svefnherbergi. Einingarnar tvær eru tengdar saman með anddyri þar sem einnig er hægt að ganga út í garð. Alltaf er hægt að sjá úr einu herberginu yfir í annað þegar labbað er í gegnum húsið og alltaf útsýni í garðinn. Loftið mun verða málað fölgult en ætlunin er sú að þegar sólin skín á það á að líta út fyrir að það sé tjald sem ljós skín í gegn. Húsið verður hlaðið úr múrsteini og ljóst yfirlitum þannig að það stendur út úr dökkum litum skógarins í bakgrunninum.
Ég er orðinn mjög spenntur fyrir að byrja á kotinu okkar á næsta ári og hlakka til að sjá útkomuna.
Ég er orðinn mjög spenntur fyrir að byrja á kotinu okkar á næsta ári og hlakka til að sjá útkomuna.
No comments:
Post a Comment