Wednesday

Grein úr Danish Interior Design

1. mars 2010

Þessi grein um heimilið mitt kom í dönsku innanhúshönnunar tímariti:

------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Heimili Finn Juhl er dæmi um verk hans sem arkitekt og húsgagnahönnuður. Húsið er staðsett á Kratvænget 15 í Charlottenlund, norður af Kaupmannahöfn, og var byggt árið 1942. Það er staðsett á 1700m² lóð við hlið almenningsgarðsins í Ordrupgaard.



Finn Juhl hugsaði út frá rýmum, það er hann byrjaði á því að hugsa um rýmin og vann sig að ytri útliti út frá þeim. Yfirborð hússins átti að lýsa hugmyndum að innviði þess. Finn Juhl átti auðvelt með að flétta rýmum saman við hvort annað og hafði góðan skilning á lýsingu.

Garðurinn var hannaður af landslagsarkitektinum Troels Erstad.

Í dag er litið á húsið sem gott dæmi um Danskan módernisma í arkitektúr, húsgagnahönnun og sjónrænni list.

Í stofunni er hægt að sjá eitt frægasta verk Finn Juhl, hvítur sófi sem heitir „Poeten og lillemor“ (Skáldið og móðirin) eftir danskri mynd sem hann kom fyrir í. Á móti sófanum er annar frægur hlutu en það er ,, Høvdingestol“ eða ,,Chief‘s chair“.

http://modculture.typepad.com/.a/6a00d83451cbb069e201053713366f970b-800wi

Ekkert í heimili Finn Juhl er þar af tilviljun. Þar má finna mikið af klassískum bókmenntum og list, meðal annars eftir Egil Jacobsen, Vilhelm Lundstrøm og höggmyndir eftir Erik Thommesen og Sonju Mancoba. Honum fannst það gefa heimilinu jafnvægi og samheldni.

Blaðagrein úr DesignMonthly

febrúar 2010

Ætla að gamni mínu að birta grein sem birtist um mig í hönnunarblaðinu DesignMonthly í febrúar 2010.

Hún fjallar í stuttu máli um æviferil minn og er ég sérlega ánægður með hana.

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Finn Juhl var fyrsti danski móderníski húsgagnahönnuðurinn sem varð þekktur. Hann bjó til nýjan danskann húsgagnastíl sem lagði að jöfnu form og notagildi. Það var tekið eftir honum á heimsvísu, mest eftir að hann hannaði Trusteeship Colncil Room í höfuðstöðvum sameinuðuþjóðanna, og í framhaldi af því var hann óformlega kallaður, faðir danska módernismans.

Finn Juhl var lærður arkítekt og innanhús hönnuður, og sjálflærður iðnhönnuður. Það var einhverskonar dönsk hefð fyrir arkítekta og málara að hanna húsgögn til eigin notkunar. Orðspor hans fyrir bygginga- og rýmishönnun kom á undan frægð hans sem húsgagnahönnuður. Á meðal afreka hans sem arkítekt voru 33 farmiðasölur Skandinavians Airlines (SAS) víðsvegar um heiminn og árið 1951, fékk hann hönnunarverkefni í byggingu sameinuðu þjóðanna. Þetta verkefni opnaði mikilvægar hurðir og reyntist síðar ómetanlegt fyrir alþjóðlegan áhuga á danska módernismanum.

Frumkvöðlastarf Juhls hvað varðaði húsgagnahönnun byrjaði upp úr 1930, en þá þróaði hann þann stíl, sem hann var þekktur fyrir - samruna burðarvirkis stóls og yfirborðs sætis, arma og baks. Notkun hans á hinu "lifandi, lífræna" var uppreisnargjörn. Hann kynnti "fljótandi" sætisyfirborð og notaði oft áklæði til að kalla fram kontrasta við harðari burðarvirki stóls.

Finn Juhl fæddist í Frederiksberg í Danmörku, 30 janúar árið 1912. Pabbi hans og bróðir ólu hann upp þar sem móðir hans dó 3 dögum eftir fæðingu hans. Það er ekki hægt að segja hvernig áhrif þetta hafði á bernsku hans en aðspurður hvort að hann saknaði hennar sagði hann nei, að það væri ekki hægt að sakna einhvers sem maður þekkti ekki. Hann stundaði nám í Royal Academy í Kaupmannahöfn, árin 1930-1934, einsog margir aðrir, og lauk námi þaðan með gráðu í arkítektúr. Eftir að hann útsrifaðist fór hann að vinna fyrir arkítekt að nafni Vilhelm Lauritzen. Þann 15 júlí, árið 1937 giftist hann Inge-Marie Skaarups, en þau skildu seinna meir. Þó svo að Juhl hafi sett húsgagnahönnun fyrir sig í endann, var hann frábær arkítetk og fyrstu verðlaunin sem hann fékk, árið 1942, voru fyrir hans eigin hús. Árið 1945 yfirgaf Juhl arkítektastofu Lauritzen og fór og stofnaði sína eigin vinnustofu. Finn Juhl yfirgaf aldrei arkítektúr að fullu og það var einmitt það sem gerði hann svona frægann í danskri hönnun, blanda hæfileikanna. Á árunum 1945 – 1950 kenndi hann í tækniskólanum í Frederiksberg. Þegar hann var ekki að kenna eyddi hann öllum stundum á vinnustofunni sinni. Þar átti hann best heima. Árið 1961 hóf hann síðan sambúð með Hanne wilhelm Hansen.

Finn Juhl dó í Kaupmannahöfn, þann 17 maí, árið 1989, en heppilega þá er hægt að skoða verk hans á nokkrum söfnum um heiminn.

Juhl gerði margt og mikið yfir ævina og hæfileikar hans náðu lengra en bara yfir húsgagnahönnun og arkítektúr. Hann var ráðinn til að hana ritvél fyrir IMB, ísskápa, keramík og einnig glervörur fyiri Georg Jensen.

Model 137

árið 1953


Model 137Ég er stoltur að kynna fallegan stól sem er hannaður sérstaklega fyrir fyrirtækið France & Son.


Hann kemur fram undir tveimur nöfnum, annars vegar Model 137 og hins vegar er hann kallaður Japanska Módelið (The Japanese Model) þar sem hann er undir miklum japönskum áhrifum. Þá sérstaklega hið undurfagra Miajima Watergate sem stendur undan strönd Hiroshima.


Ég reyndi að draga fram einfaldleikan og hógværðina sem einkennir hliðið.

Ég hef hannað seríu sem samanstendur af hægindastól, fótaskemil og tveggja til þriggja manna sófa.

Hann er vel unninn, með handsaumuðu áklæði og er grindin annað hvort unnin úr eik eða hnotu.

Baker Furniture inc.

árið 1952


Auglýsing fyrir Baker Furniture inc. Amerísk húsgagnaverslun. Þarna er stóll eftir mig í aðalhlutverki. Mjög mikið afrek að vera kominn inn á Amerískan markað.

Stærsta verkefnið til þessa

árið 1951

Ég fékk það verkefni að innrétta The trusteeship council chamber hjá Sameinuðu Þjóðunum! Þetta er lang stærsta verkefnið mitt til þessa og það kom mér á kortið út um allan heim.

Þetta er útkoman:

https://blogger.googleusercontent.com/img/b/R29vZ2xl/AVvXsEj6tFpR_IGYS_741dkMcD39HVKO4Om6Ez6Mcze61antaB1inztfbrFMXqRfc47n_prH3_boc2hYuvPBjLzpPOgu1C5cT2f364pNH7Tg9aGlQ_2eDJxWH4YBZayP4a9FAhD6F8Zilo7_1UyT/s400/NY+UN+Room+1.jpg

Allt inní salnum er danskt og hefur þetta gert danska hönnun vel þekktan og eftirsóttan stíl, núorðið þekkt sem Danish Modern eða Danish Design á alþjóðavísu.
Ég er mjög ánægður með að hafa fengið þetta í hendurnar þar sem ég er enn ungur og óreyndur á arkitektavísu, en mér finnst þetta hafa tekist vel og finnst sem ég hafi öðlast mikla virðingu og þekkingu fyrir þetta mikla verk.

Veggir salarins eru þakktir aski (ash-wood) sem eiga að auka hljómburðinn.

Endilega skoðið fleiri myndir í myndaalbúminu mínu. Hlekkur hægra meginn uppi.

Verkefni

árið 1946

Góðan daginn!
Mér fannst mjög góð ástæða fyrir því að skella inn einu bloggi núna, þar sem að ég var að fá mjög stórt innanhúshönnunar verkefni. Ég á semsagt að innrétta Bing og Grøndahl búðina á Amagertorv í Kaupmannahöfn!

Húsið okkar er tilbúið!

árið 1942

Fallega húsið okkar er tilbúið og ég skellti inn nokkrum myndum á myndasíðuna mína, þið getið ýtt á ,,Myndir" hérna til hliðar.

Við erum flutt inn og okkur líður rosalega vel og ég eyði mestum tímanum mínum á vinnustofunni.

,,Poeten"

Nóvember 1941

Ég er orðinn svo spenntur yfir nýja heimilinu okkar sem verður fullgert á næsta ári og til að drepa tímann ákvað ég að hanna stól sérstaklega fyrir það. Stóllinn heitir ,,Poeten" og ég vona að hann verði settur í framleiðslu seinna meir.

Hérna er mynd af stólnum



Húsið okkar á Kratvænget 15

Nóvember 1941

Jæja, nú erum við hjónin byrjuð á miklum framkvæmdum, nú ætlum við nefnilega að byggja okkur hús. Ég er búinn að teikna það en húsið
verður sett saman af tveimur einingum sem standa hlið við hlið. Önnur einingin inniheldur stóra stofu og lítið vinnuherbergi en hin eldhús, borðstofu, baðherbergi og svefnherbergi. Einingarnar tvær eru tengdar saman með anddyri þar sem einnig er hægt að ganga út í garð. Alltaf er hægt að sjá úr einu herberginu yfir í annað þegar labbað er í gegnum húsið og alltaf útsýni í garðinn. Loftið mun verða málað fölgult en ætlunin er sú að þegar sólin skín á það á að líta út fyrir að það sé tjald sem ljós skín í gegn. Húsið verður hlaðið úr múrsteini og ljóst yfirlitum þannig að það stendur út úr dökkum litum skógarins í bakgrunninum.

Ég er orðinn mjög spenntur fyrir að byrja á kotinu okkar á næsta ári og hlakka til að sjá útkomuna.

Pelíkaninn

árið 1940

Ég ákvað að skella inn hérna einni færslu. Ég var að hanna stól, mætti segja að lífrænt form hans sé gott dæmi um áhrif sem ég fæ frá absrtrakt skúlptúrum og artistum líkt og Picasso, Henry Moore og Jean Arp.
Pelíkaninn er mjög þæginlegur stóll og kemur í mörgum litum og einnig er hægt að velja um nokkrar tegundir af við í stólfótunum.

http://www.arcspace.com/exhibitions/finn_juhl/15juhl.jpg

Tuesday

Sýning

árið 1937

Ég var að sýna húsgögn á húsgagnasýningu í Kaupmannahöfn. Hún var haldin á vegum, Kunstakademiets Arkitektskole

Þarna var ég í raun að koma fyrst fram sem húsgagnahönnuður og fékk ég strax mikð af umtali vegna húsgagna minna.

Það vill þannig til að flestir sem komu fram á sýningunni höfðu annað hvor smiðsnám að baki eða höfðu lagt stund á húsgagnasmíði. En þar sem ég er bara sjálflærður húsgagnasmiður þá þykja húsgögn mín brjóta margar hefðir handverksmannana.

Ég lít í raun ekki á mig sem húsgagnasmið, ég er að þreifa fyrir mér á nýu sviði, húsgagnahönnun. Vonandi mun þetta uppátæki mitt ekki valda of mikum usla meðal hefðbundu húsgagnasmiðanna.

Finn Juhl was not an educated furniture architect, but an all round building’s architect, something he often emphasized.

árið 1934

Stofunni hans Wilhelms hefur verið úthlutað einstakt vekefni.

hanna Radiohuset í Frederiksberg. Stefnt er á að ljúka verkinu árið 1936.

Þar verður fúnksíolisminn ofar öllu og erum við öll afar spennt yfir þessu öllu saman.

Kay Fisker ásamt þeim Povl Stegman og C.F. Møller unnu samkeppni.

Verkefnið snérist að skólanum sjálfum og sköpuðu þeir danska sýn á alþjóðlegan Fúnksjónalisma, þetta vakti mikla hrifningu, ekki síst á meðal okkar nemenda.

Í kjölfarið af þessu hefur einn af kennurunum mínum, Vilhelm Lauritzen valið mig til að vinna á stofunni sinni. Þetta tel ég mikinn heiður þar sem Vilelm er einn af virtari kennurum skólans. Og velur hann aðeins þá nemendur sem hann hefur mikð dálæti á.

Sérstaklega þykir mér þetta áhugaverð staða þar sem Vilhelm hefur í auknum mæli verið að snúa sér frá klassisma yfir í fúnksjónalisma. Þarna fæ ég þá kjörið tækifæri til að þróa mínar hugsjónir undir leiðsögn mikils metins meistara.